†
Sesar Þór Viðarsson F: 16.06.1986 - D: 04.03.06. 2006

Maður veit ekki hvar maður á að byrja, það eru svo óendanlega margar minningar sem Sesar skilur eftir sig... Ég á eftir að minnast hans alla ævi, hann á svo stórann part í hjarta mínu.. þegar ég vaknaði upp við þessar fréttir vissi ég ekki hvað ég hét, mér hefur aldrei liðið eins illa... en ég veit að hann fylgist með okkur og hefur það gott, við þá hugsun hlínar mér í litla hjartanu mínu..
Fyrst vil ég nú byrja á hinum "heimsfrægu" aulabröndurunum hans Sesars..Ef ég hugsaði mér að fara í heimsókn, þá gat drengurinn gert grín af mér heilu helgarnar, oft... og það var non stop þá.. ef ég kom í heimsókn þá voru það eintómir aulabrandarar og gert grín af mér... honum þótti það als ekki leiðinlegt, það vitið þið famelían í Brakanda.. við matarborðið, hvort sem það var morgunmatur eða kvöldmatur.. þá var ég aðal umræðuefnið.. og bara gert grín af mér, og svo komu þessi blessuðu aulabrandarar inná milli sem ég var ekki að fatta, þá kom bara enþá meira grín..
Ég get sagt endalausar sögur, við eigum alsstaðar minningar saman, hvort sem það er fótboltaæfing með Smára, fjósatími eða bara e-ð.. allt minnir mig á Sesar.. einsog ég sagði þá er hann bara svo stór hluti af hjartanu mínu, einsog þessi yndislega fjölskylda sem tók manni alltaf svo vel..
Þetta byrjaði allt saman sumarið ’98 að mig minnir, á miðvikudagskvöldi á æfingu hjá Smára.. ég mætti og þekkti ekki eina einustu manneskju.. stelpurnar tóku strax vel á móti mér og gleymi ég því aldrei... svo sá ég þenna dökkhærða strák sprangandi þarna útum allt, með sína skemmtilegu takta og sérstaka hlaupatakt, vá.. ég hélt ég myndi ekki sjá sólina framar.. ekki var það verra að þú vast bróðir einnar vinkonu minnar og bjóst rétt hjá mér.. vá hvað ég gleymi þessu aldrei.. þú baðst alltaf systir þína um að segja mér hvað ég væri sæt og svoleiðis og alltaf var ég jafn ánægð því ég var alveg bálskotinn í þér hehe... sumarástin klikkar ekki.. hehe J Þið Sara komuð í heimsókn til mín í Skriðu og vá hvað við vorum feimin hehe... við dunduðum okkur e-ð saman og þið voruð svo heppin að fá skúffuköku, æji þetta er e-ð svo eftirminnilegt.. svo þegar þið voruð að fara þá langði okkur svo að kissa hvort annað bless en vorum svo feimin að við þorðum því ekki hehe... enda ekki nema 12 ára pjásur.. hehe..
Svo hrindirðu minnir mig sama kvöld, eða reyndar mörg kvöld, minnir að það hafi verið þetta og spurðir hvaða strákur mér fynndist nú vera sætastur á æfingum.. og þú vissir nú alveg svarið.. en varðst nú samt að spurja hehe.. gleymi þessu aldrei...
Svo gerðist það nú eitt kvöldið.. vorum á æfingu, einsog svo oft áður.. þú varst náttúrulega í marki.. var vítaspyrnukeppni, og ég ákvað að láta gera lítið úr mér og skellti mér á punktinn en það vildi nú ekki betur en svo að ég skoraði hjá þér.. vá hvað ég gleymi því aldrei.. það rigndi uppí nasirnar á mér úr monti.. en það stóð ekki lengi.. þú borgaðir það til baka.. við stelpurnar vorum oft bara svona saumaklúbbur, öllum til mikilla ánægju, en svo bara kabúmm.. mín fékk þessa þvílíku þrusu, beint í smettið.. vá hvað það var sárt.. og VÁ hvað þú fóst í mikla kleinu.. meiri en þegar ég skoraði hjá þér hehe.. en allavegana eftir þetta þá fær bolti ekki að koma mikið nær mér heldur en 300 metrar :)
Svona liðu sumrin.. sumar kom og sumar fór.. við eldumst og þroskuðumst og allt sem því fylgdi.. við áttum frábæra tíma saman í sveitinni... fyst ég mynnist nú á sveitinna... þér fannst nú ekki leiðinlegt þegar ég skellti mér með í fjós og við röltum saman og sóttum beljurnar saman.. ekkert smá rómó hehe... þessi mynd yljaði mér um hjartarætur þegar ég sá hana, þá rifjuðust upp svo margar gamlar góðar mynningar.. 
Svo var það nú eitt... þú fékkst nú ekki leið á því að kalla á mig; “hey Þórdís” ég bara “já” þá kom um hæl “þegiðu” og þú hlóst og hlóst.. þú gast endalaust gert þetta en alltaf svaraði ég...
Svo þegar ég og Sara vorum að reyna að fá næði (þó svo að mér fannst athygli þín alltaf skemmtileg) þá heirðist ætíð í söru ; “æji Sesar hættu þessum stælum” alltaf með sama “blíða” tóninum.. hehe.. eða kom “æji blessaður þroskastu” eða “hættu þessum stælum” hehe. Vá hvað hún gat orðið skemmtilega þreytt á þér... þú ert svo mikill púki í þér..
Vá hvað ég man eftir þessari mynd, þarna sáum við varla enþá sólina fyrir hvort öðru og gekk það svoleiðis um nokkurt skeið hehhe.. æji það er svo gaman að rifja svona upp.. J

Man líka efir því að ég hélt nú á tímabili að þessi bolur væri gróinn við Söru hehe... og þú í þessum gulu buxum hehe... J
Honum Þór í skriðu fannst nú leiðinlegt ekki að gera grín af okkur.. og leið ekki sá dagur sem hann minntist ekki á nafnið þitt...
Einn daginn vorum við e-ð að huga að nautunum, sem voru s.s. við hliðina á jörðinni ykkar.. þar var einhver bílskrjóður og ég ákvað nú að spurja um hann... þá kom Þór snöggur og svaraði að þú ættir þennan bíl, þú ætlaðir að gera hann upp þegar þú yrðir eldri og svo yrði þetta brúðarbíllinn okkar.. vá hvað ég gleymi þessum bíl aldrei.. hann á eftir það bara einhverja svo sterka minningu.. ég er viss um að þú komir á honum og takir á móti mér þegar ég kem til þín :) hehe..
Svo einu sinni þegar við vorum að keyra framhjá Brakanda þá mættum við þær, þú ber að ofan með sólgleraugun.. algjör töffari og þá fannst Þór ekkert leiðinlegt að bögga mig.. hehe... ég gleymi þessu aldrei.. þú þarna smá pjakkur á risatraktor og veifaðir einsog þú ættir lífið að leysa J
Svo má nú ekki sleppa einum frægasta 17. júní ever held ég.. þá vorum við heima hjá Kötlu.. þú baðst okkur um að skafa á þér hausinn.. við bara WHA... og okey, létum vaða.. og vægast sagt, þá sköfuðum við á þér hausinn með sköfu.. kvennmannssköfu.. vá hvað þetta var fyndið.. svo fannstu e-ð ógeðslegt leðurvesti, og gallajakka eða e-ð álíka og vast í þessu... vá ég vissi ekki hvert ég ætlaði þetta var svo fyndið... þú vast e-ð voða snúinn þennan dag... ef ég hefði ekki þekkt þig þá hefði ég haldið þig í hinu liðinu.... J en auðvitað ertu það ekki... ALLIR vita það hehe...
svo einu sinni litaðiru hárið blátt... vá.. þú fékkst athygli..
Vá.. eitt fallegt sumarkvöld.. (eða man ekkert með það, allavega sumarkvöld).. við vorum að glápa á TV i brakanda.. og svo kom þessi svaka smellur.. þá hafðiru slegið svona líka fast í lærið á Kötlu að það svona líka bergmálaði í húsinu... greyið katla.. enda voru ummerki um það.. það sást beinagrind af hendinni á sesari á lærinu á henni... algjör snilld...
Sesar er ekkert nema frábær strákur í alla staði... hann er alltaf svo hress og glaðlyndur.. enda kolféll ég fyrir þér þegar ég sá þig fyst.. J það voru ekki margir sem fengu að kynnast þeirri hlið á þér sem ég fékk að kynnast.. þegar ég var heima hjá ykkur heilu helgarnar þá getur ekki annað verið en maður kynnist smá svona ljúfu ljúfu ljúfu hliðinni hehe...
ekkert smá fallegur... ég á alltaf eftir að elska þig kæri vinur
Þetta lag var samið um vin minn sem lést fyrir rúmu ári síðan... vildi láta hann fylgja með því mér finnst þetta svo óendanlega fallegur texti..
Við saman !
Á öðrum stað , á öðrum tíma,
er ég viss um að við hittumst á ný.
Á betri stað, ert þú nú kominn.
Þín heimkynni við undurmjúk ský.
Tíminn líður eftir þann dag,
er þú varðst að kveðja þennan heim.
Hugsanir um horfna tíma,
og hve vel ég man eftir þeim
- Við saman, í gegnum, lífshlaupið ávallt með bros á vör,
við lékum , í lyndi, hjá okkur var lífið ávallt fjör.
En núna ertu horfinn fyrir sól,
ég hélt að lífið, myndi standa í stað.
Með krafti að ofan, frá góðum guð,
ég held áfram með lífið, svona er það.
Lífið breyttist, er ei lengur eins.
Ég þakka guði nú, fyrir sérhvern dag.
Ég vildi heiðra minningu góðs drengs.
Svo ég ákvað að semja þetta lag.
- Við saman, í gegnum, lífshlaupið ávallt með bros á vör,
við lékum , í lyndi, hjá okkur var lífið ávallt fjör.
Ég varðveiti allar minningar , í hjartanu að eilífu,
Gleymi aldrei góðu dögunum, gleymi aldrei þér...
- Við saman, í gegnum, lífshlaupið ávallt með bros á vör,
við lékum , í lyndi, hjá okkur var lífið ávallt fjör.
lag/texti: Binni
____________________________________________________________________________________________
vá.. það er kominn 27. júlí.. hver gæti trúað því.. ég sakna þín enþá svo mikið elsku Sesar minn.. ég er engan vegin að sætta mig við þetta.. það er ekki hægt, en maður reynir að halda áfram og hugsa til þín.. ég veit þú hefur það gott..
elsku kallinn minn.. ég sakna þín enþá svo óendanlega mikið.. það er svo margt sem maður á alltaf ósagt.. en þú ert eflaust búin að komast að því núna.. hehhe
ég ætlaði mér nú að koma með nokkur orð eftir vesló.. en bara vissi ekki alveg hveju á átti að koma útúr mér.. en núna er liðið hálft ár frá þessum hræðilega atburði.. afhverju er þetta líf svona?
en elsku Sesar minn taktu vel á móti Unni Bettý og litla bumbubúanum hennar.. þetta er ekkert smá erfitt fyrir fjölskylduna og alla í kringum hana..
úff.. mig langar að segja svo mikið og það líður ekki sá dagur sem ég hugsa ekki til þín.. bara svo þegar maður ætlar að fara að skrifa e-ð, þá er maður bara frosin.. en allavega.. ég elska þig elsku elsku Sesar minn.. vildi að ég gæti sagt það við þig.. en allavega bæó í bili
27.09.06
ég rakst á könnun áðan.. það var spurt hvort æskuástin myndi aldrei deyja.. ég er sannfærð um að hún mun aldrei gera það.. og það vesta er að æskuástin mín ert þú elsku Sesar minn.. en þetta er bara þægileg tilfinning að hafað allavega getað verið voða voða skotinn í þér og fengið að vera með þér þann tíma sem við fengum saman.. ég sakna þín óendanlega mikið.. endalaust.. þú ert og munt alltaf vera í litla hjartanu mínu kall..
11.10.06
sæll sæti.. varð að rita smá niður.. er búin að hugsa svo mikið til þín undanfarið.. sakna þín.. sérstaklega í gær og í dag.. þú lumaðir stundum á svo góðum ráðum í "girlstalk" hehe.. en æji ég veit ekki hvað segja skal.. en vonum bara að þetta reddast allt saman.. afhverju getur lífið verið svona erfitt og ósanngjarnt? finnst það ekki rétt.. eigum alltaf að vera hamingjusöm..
en góða nótt sæti minn og ég skrifa bráðum örugglega meira.. trúi ekki öðru.. allavegae ef þetta heldur svona áfram mikið lengur..
jæja.. þá er kominn 27. okt. tíminn líður.. tíminn líður.. segi ekki annað.. mánudagurinn er ekki liðinn og þá er allt í einu kominn laugardagur.. já elsku kallinn minn.. lífið er yndislegt núna.. hef trú á því að þú sért að hjálpa mér aðeins svona ;) hehe.. alveg komin tími fyrir að maður hafi endalausa hamingju.. vonum bara að þetta gangi til enda :) jú nó watt æm tolking abát hehehe... en já.. allavega hafðu það gott gamli.. vildi bara þakka þér fyrir, fyrir þennan frábæra tíma sem er núna og er framundan :)
úff.. allt of langt síðan seinast.. strax komin 28. jan..
ég fór á þorrablót í gær í hörgárdalnum, ég saknaði þín. það er ekkert flóknara.. það hefði verið alveg ótrúlega gaman að hafa þig með.. þá hefði allavega verið einn sætur strákur hehe..
Siggi byrjaði að stríða mér, gat verið. þetta var bara einsog að vera sest við matarborðið í brakanda hérna á fyrri árum hehe.. þar sem þú gerðir grín af mér eisnog þú fengir borgað fyrir það hehe..
en já.. ég sakna þín alveg óendanlega mikið.. reyndu nú að vísa mér rétta veginn hehe.. jú nó vatt æm tokking abát ;) hehe
Ein í huga mér
lifir þín mynd
svo heil og sönn.
Sem aðeins lítil stund
væri mér liðin hjá
síðan þú varst
hér enn í faðmi mér.
Ein í hjarta mér
lifa þín orð,
þitt vinarþel.
sem aldrei sveik þó ég
gæti ei skilið allt
sem þú gafst
mér þá af hjarta þér.
Þó ár og fjarlægð skilji okkur að
og enginn geti komið í þinn stað
mun samt minning þín lifa
á meðan lifi ég,
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
En ár og eilífð skilja okkur að
og enginn getur komið í þinn stað,
þó skal minning þín lifa
á meðan lifi ég,
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lifið leit til mín
og leiddi mig til þín.
(Óskar Pétursson) 
Það er endalaust hægt að rifja e-ð skemmtilegt upp og kem ég með meira seinna..